fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Mig langar aðeins að halda áfram með umræðuna um krónutölugjöldin sem hæstv. forsætisráðherra sagði að væri einhver misskilningur þar sem þetta væri fyrst og fremst skattalækkun. Auðvitað þýðir það að stofninn lækkar ef þetta er gert viðvarandi. Þetta eru hins vegar, talandi um verðbólguvæntingar, svakalega sterk skilaboð. Ríkisstjórnin segir: „Við trúum ekki á að við náum verðbólgunni niður í markmið. Þess vegna ætlum við að viðhalda öllum okkar höfuðstólum og sköttum með því að taka bara verðbólguspána. Ef hún er 6% þá ætlum við bara að hækka um 6% og ef hún er 4,5% þá eru það 4,5%.“ Í staðinn fyrir að koma út og segja: „Nei, við erum að stefna hér í verðbólgumarkmið og þess vegna verða krónutöluhækkanirnar bara um 2,5% eða 3%.“
Ég geri mér alveg grein fyrir því að til langs tíma rýrna skattstofnarnir. Ég segi þetta af reynslu vegna þess að við gerðum þetta á sínum tíma þegar við vorum að ná niður verðbólgu, sem síðan tókst og við vorum í einhver fimm ár með stöðugt verðlag og sífellt lækkandi vexti áður en alls konar hörmungar gengu yfir. Ég vil bara koma því að að þetta getur verið umræða um hvort það hafi meira vægi að skilaboð ríkisstjórnarinnar um krónutölulækkun séu til að ná niður verðbólguvæntingunum eða hvort þetta snúist bara um skattalækkun eða skattahækkun eins og hæstv. forsætisráðherra segir. Ég held að það vegi minna.
Mig langar aðeins að spyrja um varasjóðina. Mér finnst vera sérkennilegt að búið sé að þurrka út varasjóði málaflokkanna. Hinn almenni varasjóður á að vera 1%. Hann er eitthvað í kringum 20, sem er 1,25%, sem þýðir að það er ekki mikið borð fyrir báru. Mig langar að heyra aðeins sjónarmið hæstv. forsætisráðherra um þetta og reyndar krónutölurnar ef hún hefur áhuga á því að tjá sig meira um það.