157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:58]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé alveg klárt að þetta er ekki misskilningur heldur eru þetta einfaldlega mismunandi sjónarmið um hvort sé skynsamlegra. Ég var kannski fyrst og fremst að leggja það til að ná hallalausum fjárlögum 2026 vegna þess að ég held að það sé hægt. Ef skilaboðin um krónutöluhækkunina væru verðbólgumarkmið þá myndi það nást. Þá færi verðbólgan niður og þá þyrfti ekki að gera þetta um aldur og ævi og það myndu ekki rýrna neinir stofnar.

Mig langaði að nota síðasta tækifærið hér til að ræða aðeins um atvinnustefnuna sem hæstv. forsætisráðherra stendur fyrir og samhengið við fjárlögin, sem mér finnst skorta algerlega. Það er ein setning í 365 blaðsíðna bók um það. Þar af leiðandi er ekki hægt að sjá, alla vega ekki fyrir þann sem les fjárlögin í fyrstu hendingu, neina tengingu við hvað sé í vændum. Kannski er það vegna þess að atvinnustefnan á að koma í framkvæmd seinna meir og hefur ekkert með árið 2026 að gera. Ég held að það hefði verið mikilvægt að í þessum fyrstu fjárlögum ríkisstjórnarinnar hefði verið kafli um (Forseti hringir.) hvaða væntingar menn hafa um hvaða áhrif það gæti haft á ríkisfjármálin.