157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:59]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta spurningu. Ég skil alveg hvað hann er að fara. Það er auðvitað svolítið matsatriði hvenær þú lætur áhrif af svona birtast. Það eru sumir sem kölluðu eftir því þegar við fórum í ákveðnar breytingar í sjávarútvegsmálum í vor að atvinnustefna ætti að koma fyrst. Við erum að fara í ákveðnar kerfisbreytingar í ferðaþjónustu þegar kemur að aðgangsstýringu og gjaldtöku, það verður í vetur, og ég gef mér að það sé einmitt í anda þessarar stefnu. En við erum líka að gefa okkur þennan tíma, næstu 5–6 mánuði, til að eiga ákveðið samráð við atvinnulíf, verkalýðshreyfingu, vinnumarkað og fleiri aðila. Það er hins vegar verið að ráðast í ákveðnar breytingar sem nýsköpunarráðherra held ég geti farið í saumana á, t.d. varðandi áherslur í rannsóknum og þróun og hvernig ákveðnum endurgreiðslum er fylgt eftir. Þannig að það er víða verið að gera ákveðnar breytingar sem eru í takt við atvinnustefnuna. Ég nefndi gjaldtöku í ferðaþjónustu, ég nefni rannsóknir og þróun og annað. Ég held að það sé líka gott að við gefum okkur að eftir áramót þegar við sínum almennilega á spilin eftir gott samráð hér í vetur þá endurspeglist þetta í fjármálaáætlun. Ég vona að hv. þingmaður veiti okkur aðhald í umræðunni þar.