157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:14]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Mér fannst nú á einhverjum tímapunkti eins og hann væri hálfbugaður yfir því að vera fjármálaráðherra í þessu frábæra ríki vegna þess að við værum svo lítil og smá og þess vegna þyrftum við mögulega meira. En ég held að hæstv. ráðherra ráði alveg ágætlega við þetta verkefni engu að síður og það sé ekkert nauðsynlegt að hækka skatta per se. En út af því að hæstv. ráðherra segir að kerfið sé of flókið, þá skal ég alveg tala fyrir því og ég held að Sjálfstæðisflokkurinn hafi iðulega talað fyrir því að það sé betra að hafa einfalt kerfi. Ég veit ekki alveg hvenær samsköttun milli þrepa kom, en var það ekki mögulega af því að kerfið var flækt og sett var inn aukaþrep? Eru það raunverulega rökin fyrir því að það þurfi að fara þessa leið að það sé of flókið og dýrt að halda samsköttuninni? Þá hefði ég haldið, hæstv. ráðherra, að með nútímatæknikerfin okkar ætti það ekki að vera svo flókið því við skulum líka muna að þetta eru aðilar sem eru samskattaðir.

Ég verð líka að fá að nýta tækifærið og spyrja hæstv. ráðherra hvort hann geti vísað frekar í hvers eðlis þessi ráð eru frá þeim sérfræðingum sem hér var vísað til, frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og OECD. Snýst það fyrst og fremst um mikilvægi þess að einfalda skattkerfið en ekki endilega að sérfræðingar þeirra hafi sagt: Þið ættuð að taka af samsköttun hjóna milli þrepa?

Ég verð líka að fá að nota tækifærið, af því að ég kláraði tímann áðan, og spyrja hæstv. ráðherra: Er það ekki örugglega misskilningur hjá okkur að atvinnustefna ríkisstjórnarinnar verði ekki lögð fram á þinginu til umræðu og afgreiðslu í þingsal?