157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:19]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið og svarið við spurningum mínum. Ég get svo sannarlega tekið undir það með hæstv. ráðherra að ég er sannfærð um að við getum sameinast um breytingar á regluverki er lúta að einföldun til að auðvelda einstaklingum og fyrirtækjum að skapa verðmæti. Það held ég að ég geti fullyrt að ég muni taka þátt í og félagar mínir í Sjálfstæðisflokknum myndu styðja slíkar breytingar og fagna því mjög. Ég hef áttað mig á því að það virðist einhvern veginn vera stöðugt verkefni að fara í slíkt og vil þá minna á verkefni er varðar gullhúðun og ágæta skýrslu sem skilað var hér á síðasta þingi, af því að hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir situr hér í salnum, hún átti frumkvæði að því að vekja alla svolítið til umhugsunar um það. Það snerist einmitt um að einfalda regluverkið.

Virðulegi forseti. Ég held að það sé svo sem allt í lagi þegar við erum að tala um tekjur ríkisins að það eigi að horfa á það sem hlutfall af landsframleiðslu. En þetta breytir engu að síður því, og ég veit að hæstv. ráðherra er mjög meðvitaður um það, og hefur þau áhrif að hækka þær krónur sem einstaklingarnir greiða. Ég er kannski hér að tala út frá einstaklingunum. Hæstv. ráðherra kom svolítið inn á þessar ráðleggingar varðandi einföldun á skattkerfinu, sem ég er almennt hlynnt, og ég ætla að leyfa mér að segja það að í svari hans var auðvitað svolítið ljóst að það hefur verið tekið sumt en ekki annað sem lagt hefur verið til í þeim efnum. Ég ætla bara að hvetja hæstv. ráðherra til að endurskoða þá hugmynd sem hér er um að fella niður eða afnema samnýtingu á þrepaskiptingu því það þýðir raunverulega fyrir einstaklinga þarna úti, fjölskyldur í landinu, skattahækkun. Það þýðir skattahækkun mögulega fyrir einmitt ungt fólk þar sem annar aðilinn er í fæðingarorlofi. Þetta hefur áhrif á fjölskyldur í landinu og ég hygg að hæstv. ráðherra og reyndar fleiri í þessari ríkisstjórn hafi einmitt komið með það loforð fyrir kosningar að það stæði ekki til að hækka skatta á venjulegt fólk, venjulegar fjölskyldur. (Forseti hringir.) En ég vil bara fullyrða að svo sé þarna.

Að lokum verð ég að segja, hæstv. forseti, að það er algjörlega nauðsynlegt (Forseti hringir.) að atvinnustefnan sem slík verði rædd hér í þingsal og ég ætla að óska formlega eftir því að svo verði.