fjárlög 2026.
Herra forseti. Við höldum áfram að ræða hér þessar 365 bls. af frumvarpi til fjárlaga. Aðeins áður en ég fer efnislega í einstaka þætti, sem ég leitaði sérstaklega eftir og hef mikið talað um hér áður og beið þar af leiðandi spenntur eftir að sjá hvernig yrðu ávarpaðir í frumvarpinu, langar mig að byrja á að segja að í ljósi stöðunnar í Norðurþingi, eða á Bakka við Húsavík, og ruðningsáhrifa þess sem er að eiga sér stað þar núna, þá hlakkaði ég að sjálfsögðu til að sjá hvernig ríkisstjórnin hygðist bregðast við og hvort ég fyndi þess einhvern stað hér. Ég fagna því að sjá að hæstv. ráðherra hefur greinilega gripið þetta strax og hyggst svara mér á eftir. Það sem út úr þessari leit kom og gerði mig eiginlega hræddari en bara varðandi þessi risastóru verkefni okkar er varða PCC er að orðið Norðurþing kemur, að mér sýnist, aldrei fyrir í frumvarpinu og orðið Húsavík líklega einu sinni og það varðar hafnarframkvæmdir. Nú er ég ekkert að gera því skóna að þetta þýði að það sé engin vinna í gangi. En þetta verður til þess að ég þarf að spyrja ráðherra næst þegar ég fæ tækifæri til í óundirbúnum fyrirspurnum, nema þá hugsanlega að ég fái svörin núna þó að þetta sé vissulega ekki dagskrárliðurinn óundirbúnar fyrirspurnir. En mér sýnist einhvern veginn á hæstv. ráðherra að hann sé byrjaður að punkta niður þannig að hugsanlega koma einhver svör. Við vitum að það var skipaður starfshópur. Við vitum að þingmenn kjördæmisins áttu fund á dögunum með fulltrúum sveitarstjórnar í Norðurþingi. Ég tel mig hafa mjög áreiðanlegar upplýsingar um að þær upplýsingar sem þar komu fram hafi ratað til ráðherra, a.m.k. í meginatriðum. Því er kannski freistandi að ræða það frekar hvað er að frétta því að þetta er risastórt efnahagsmál. Þetta hefur gríðarleg áhrif á þessa bók hér sem hefur verið grínast með í dag að þyki litlaus. Mér þykir meira um vert hvað stendur í henni. En efnahagsáhrifin, við seldum, ef ég man tölurnar rétt, fyrir rúmlega 40 milljarða kr. af vörum úr þessari framleiðslu. Þannig að hér er um að ræða, til að setja það í eitthvert samhengi, stærðargráðu sem er bara mjög nálægt, held ég, því sem fiskeldið seldi fyrir á sama tíma, þannig að fólk átti sig á því að það er ekkert lítið sem er undir. Hér er ég ekki með inni í þessari tölu raunveruleg verðmæti sem koma út úr þessu því að hér eru ekki ruðningsáhrifin tekin með. Þetta eru eingöngu sölutölur af þessu hráefni sem er framleitt á Íslandi.
En að öðru sem hefur verið dálítið rætt hér í dag og ég skynja og ég fagna því að það er mikill áhugi á — ja, auðvitað hefur alltaf verið áhugi á samgöngumálum en núna hefur kannski verið að færast í vöxt að menn vilji ræða þau út frá einu tilteknu frumvarpi sem er kílómetragjaldið. Og bara til að reifa þetta aðeins með útgjöld ríkisins, yfir 1.600 milljarða, þá á að fara í það sem kallað er alvöruinnspýtingu í samgangnaviðhaldi og uppbyggingu samgöngumannvirkja upp á einhverja 7,6 milljarða, sýnist mér, og því ber að fagna. En það ber líka að spyrja: Hvaðan koma þeir peningar? Því að við notum hverja krónu bara einu sinni og þá er alltaf svo forvitnilegt að vita hvernig peninganna er aflað. Þeir koma í hús, ef við getum notað svona myndlíkingu, með margra milljarða hækkun á eigendur samgöngutækja. Þannig að galdraformúlan er ekki flókin. Hún er orðin talsvert mikið notuð. Ég er ekki hagfræðingur og treysti mér ekki til að dæma og spyr því bara: Er hagfræðin bara ekkert þróaðri grein en svo að hún er bara að notast við sömu hugmyndafræði, lögmál, og fyrir áratugum síðan? Þetta er bara líklega í líkingu við eðlisfræði, að menn geta einhvern veginn ekkert fundið neina aðra nálgun. Í stóra samhenginu eru útgjöld ríkisins til samgöngumannvirkja u.þ.b. 46 milljarðar. En tekjur, ef við tökum þessi helstu gjöld — þetta er ekki tæmandi listi, alls ekki, ég hefði getað teygt mig lengra en þá hefði líka verið auðveldara að snúa út úr fyrir mér þannig að ég ætla bara að nefna helstu gjöldin: Vörugjöld af ökutækjum, kolefnisgjald, bifreiðagjald og svo nú kílómetragjaldið, að því gefnu að það verði samþykkt hér í þessum sal í þeirri mynd sem það er lagt fram, þá er mjög varlega áætlað að reikna með að þetta skili tæpum 80 milljörðum, um 78 milljörðum. Og þar með opinberast vandinn, a.m.k. fyrir mér. Svona hefur þetta verið um árabil, áratugabil, þ.e. að við höfum alltaf rukkað ökutækjaeigendur um margfalt það sem við höfum sett í samgöngur.
Ég veit að það er ekki til neitt sem heitir eyrnamerktir tekjustofnar, ég veit það, en það hlýtur að eiga að vera eitthvert samhengi þarna, að ef við erum að taka gjöld af einhverjum til þess að geta veitt honum einhverja þjónustu þá hlýtur gjaldið að eiga að renna í að byggja upp þá þjónustu. En ég endurtek, af því að ráðherra er hér á bekknum og er að hlusta, að ég geri mér fulla grein fyrir því að eyrnamerktir tekjustofnar heyra sögunni til. Þetta þýðir að það er ekki nema svona rétt helmingur, það þykir mér ekki metnaðarfullt, af því sem við innheimtum sem raunverulega skilar sér sem aftur segir okkur enn einu sinni í enn einu málinu að vandinn er ekkert á tekjuhliðinni. Vandinn er á útgjaldahliðinni. Þetta sýnir auðvitað að bílaeigendur eru skattlagðir fyllilega nóg.
En þessi peningaþörf hins opinbera er og hefur verið síðan ég byrjaði að fylgjast með pólitík, og þó að það hljómi illa þá er það farið að telja í áratugum, óseðjandi og er það enn. Og alltaf einhvern veginn tekst pólitíkusum að telja almenningi trú um það að hann geti ekki fengið afhenta einhverja vöru eða þjónustu nema skattarnir verði hækkaðir.
Herra forseti. Þessi tími líður hratt. Ég tek undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur sem var með orðið hér áðan. Ég er ekki búinn með einn fjórða þannig að ég ætla að skauta aðeins yfir og gefa ráðherra færi á því að taka það með í þeim svörum sem ég hlakka til að heyra. Ég hlakka til að heyra hann tjá sig um málið; ég átti orðastað áðan við hæstv. forsætisráðherra, átti ágæt orðaskipti og tók að mér fyrir hönd hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur, sem fékk í raun og veru þessa spurningu frá hæstv. forsætisráðherra en svaraði ekki. Ég tók að mér að svara þessu, þótt ég hafi ekki verið spurður, fyrir hönd hv. þingmanns: Hvað viljið þið gera? Þetta kemur alltaf og hefur alltaf verið spurt í þessum sal þegar stjórnarandstaða gagnrýnir ríkisstjórn fyrir útgjöld eða skort á útgjöldum, það er allur gangur á því hvernig gagnrýnin birtist. Þá er iðulega spurt og sanngjarnt að spyrja: Hvað hefðuð þið viljað gera? Ég hefði viljað ná hallalausum fjárlögum og sleppa þar af leiðandi þessari 11 milljarða skattaaukningu á ökutæki en samt sem áður koma frumvarpi til fjárlaga á núllið með því einfaldlega að stoppa í t.d. fimm ár, taka ekki við neinum hælisumsóknum í fimm ár, skera hraustlega niður hjá RÚV og leggja niður Lyfjastofnun í núverandi mynd. Þessi ríkisstjórn er hrifin (Forseti hringir.) af norsku leiðinni, það kom margsinnis fram í fyrra. Látum bara Norðmenn um þetta líka. Þau lyf, hvort sem þau eru fyrir menn eða dýr og öðlast markaðsleyfi í Noregi, treystum bara þeirri niðurstöðu því að Norðmenn hafa verið okkur tiltölulega samferða í þeim kröfum sem við gerum í þessu eftirliti og ég reikna með að þessu verði vel tekið, (Forseti hringir.) enda komið frá Noregi.