157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:32]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Mér er sönn ánægja að geta komið til móts við þarfir þingmanna til að tjá sig með að koma í andsvör og hleypa þeim í ræðustól að nýju, enda margir skynsamlegir punktar sem hér koma fram. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans ágætu ræðu. Varðandi stöðuna á Bakka og stöðu Norðurþings þá er, eins og hv. þingmaður kom inn á, starfandi átakshópur sem tengist þeim vandamálum sem þar eru komin upp. Ég hef fylgst mjög náið með þeirri vinnu og get m.a. upplýst að ég átti fund með sveitarstjórn og forstöðumönnum á Bakka í gær. PCC hefur kvartað opinberlega vegna óréttmætra viðskiptahátta og liggur nú fyrir að ríkið mun taka það mál upp. Við munum reyna að flýta þeirri vinnu eins og mögulegt er en hún er umfangsmikil.

Ég er ekki að segja það til þess að draga úr væntingum um að þetta gangi hratt fyrir sig, það eru bara takmörk fyrir því hversu hratt það getur gengið fyrir sig. En þetta tengist auðvitað fleiri spurningum; m.a. þeim væringum sem hafa átt sér stað í heiminum almennt og nýafstöðnum viðræðum við Evrópusambandið vegna tolla á kísilmálm sem Ísland var dregið inn í að ósekju að okkar mati. Á því hefur nú orðið töf en sú töf er ekki endilega heppileg. En þetta er auðvitað mikil blóðtaka fyrir sveitarfélagið og við erum meðvituð um það. Ástæðan fyrir því að engar aðgerðir koma fram í fjárlagafrumvarpinu er sú að þetta er einn af þeim liðum sem vanalega er hluti af ófyrirséðum útgjöldum, sem vissulega eru í frumvarpinu, og nákvæmlega hvaða aðgerðir við munum grípa til liggur ekki fyrir á þessum tíma. Ég mun svo koma aftur.