fjárlög 2026.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt í umræðunni. Það er alltaf mun meira upplýsandi umræða þegar að fulltrúar beggja aðila eru að skiptast á skoðunum en salurinn ekki eingöngu skipaður öðru liðinu. Ég fagna auðvitað því sem hér kemur fram í máli hæstv. ráðherra. Ég vissi vel — og þess vegna nefndi ég það í ræðunni áðan — að þessi hópur hefði verið settur af stað og ég vissi að PCC hafði kært eða kvartað, ég veit ekki hvaða orð við notum, á grundvelli félagslegra undirboða. Auðvitað vona ég að þeirri vinnu sem nú bíður vindi sem hraðast fram en ekki bara sem hraðast heldur að hin augljósa niðurstaða, að mínu mati, verði að við sættum okkur ekki við félagsleg undirboð, þrátt fyrir einhvern fríverslunarsamning við Kína. Ég held að fríverslunarsamningar gefi ekkert leyfi til félagslegra undirboða; það er fullt leyfi til að taka á þjóðríkjum sem stunda félagsleg undirboð þótt það séu fríverslunarsamningar við þau. Það kom fram m.a. í máli hæstv. forsætisráðherra í dag: Við sættum okkur ekki við félagsleg undirboð. Við þekkjum þessa orðræðu úr fleiri greinum, úr fluggeiranum. Flugmenn hafa tjáð sig á svipuðum nótum. Því segi ég aftur: Ég bíð mjög spenntur eftir niðurstöðu þessa vinnu. Þetta eru í raun kannski fyrstu jákvæðu fréttirnar í þessu máli er varðar Norðurþing, Húsavík og PCC á Bakka í langan tíma, þ.e. sú staðreynd að það eigi að taka þessa kæru fyrir og fara efnislega í málið, því ef um er að ræða félagslegt undirboð eins og fyrirtækið heldur fram, og ég hygg að sé rétt, þá eru viðbrögðin algerlega skrifuð í skýin.