157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:37]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni og ætla að halda áfram að svara hans fyrri spurningu sem ég náði ekki í fyrra svari mínu, en það sneri að kílómetragjaldinu. Nú er það ljóst að þessi tekjustofn sem hv. þingmaður vék að, sem eru tekjur ríkisins af umferð og bílum, hefur verið að rýrna mjög hratt á undanförnum árum einfaldlega í tengslum við aukna skilvirkni og neyslugrennri ökutæki. Kostnaður okkar af rekstri vegakerfisins er hins vegar sá sami og raunar er það þannig, eins og kom fram í máli hæstv. innviðaráðherra í gær þar sem hann vitnaði í fyrrum forseta Bandaríkjanna; að Bandaríkin væru ekki ríkt land með öflugt vegakerfi heldur ríkt land vegna öflugs vegakerfis. Þetta er lífæðin í allri atvinnustarfsemi úti á landi og alveg gríðarlega mikilvægt fyrir okkar þjóð. Við þurfum að horfast í augu við það að þessir innviðir mega ekki grotna og að upp hefur safnast skuld sem við þurfum að vinna á. Fyrri ríkisstjórn hafði sett sér, að mínu viti, skynsamleg markmið um að ná útgjöldum á þessu sviði upp í 1,7% af landsframleiðslu og það er markmið þessarar ríkisstjórnar að halda áfram á þeirri vegferð. En ég ætla hins vegar að hryggja hv. þingmann með því að mín ágæta fræðigrein, hagfræðin, er úti í hinum stóra heimi kölluð hin döpru vísindi. Þau eru hin döpru vísindi einfaldlega vegna þess að fréttirnar um það að ekki sé hægt að eyða sömu krónunni tvisvar eða krónu sem þú átt ekki er ekki hægt að eyða, eru því miður klassísk og algild en aldrei skemmtilegt að flytja fólki fréttir af.