fjárlög 2026.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir skýr svör en verð þó að segja að ég er langt því frá að vera sammála hæstv. ráðherra í því hvernig nálgast eigi þetta mikla verkefni, sem er viðhald vega. Ég fór sérstaklega yfir það áðan og taldi mig vera að gera ráðherranum mikinn greiða. Ég lagði á borðið fyrir hann þessa milljarða sem vantar upp á. Það þarf ekki að hækka álögur á alla bílaeigendur í landinu sem nemur allt að 11 milljörðum kr. þegar hallinn á ríkissjóðsrekstrinum er 15 milljarðar. Ég taldi upp hér áðan málalykla, ef við getum kallað svo, þeir sem eru í bókhaldi tala oft um lykla. Ég lagði upp að skera niður í RÚV. Ég lagði upp fimm ára stopp á veitingu dvalarleyfa fyrir hælisleitendur. Ég er löngu kominn með þessar tölur sem ráðherrann vantar til að loka dæminu. Samt á ég enn eftir að leggja niður Lyfjastofnun og treysta bara á Norðmenn, sem við höfum hingað til fylgt í nánast öllu mati okkar á markaðsleyfi fyrir lyf fyrir menn og dýr. Ég er búinn að fjármagna þetta fyrir hæstv. ráðherra. Við þurfum ekkert að hjóla með þessum hætti í alla bílaeigendur á landinu. En ég þakka hæstv. ráðherranum engu að síður fyrir að vera viðstaddur og taka þátt í umræðunni. Það auðgar umræðuna.