157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:51]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir sína góðu ræðu og prýðilega yfirferð yfir verk Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn en niðurstaðan af tíma Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn er m.a. að við erum núna að greiða 125 milljarða í vaxtakostnað vegna þess hallareksturs og skuldasöfnunar sem hefur átt sér stað. Það er náttúrlega ein af þeim forsendum sem ríkisstjórnin sem nú er við völd þarf að vinna eftir.

Varðandi séreignarsparnaðinn, þá finnst mér ekkert óeðlilegt að það komi ekki fram í fjárlögum ákvörðun um að framlengja þessa leið. Við þurfum þá að gera það á vettvangi þingsins og það er eitthvað sem ég er persónulega mjög til í að skoða. Í ljósi þess að þetta er ekki úrræði sem hefur áhrif á rekstur ríkisins á næsta ári, þá finnst mér fullkomlega eðlilegt að það komi ekki fram í fjárlögum hvort það séu áform um að framlengja þessa leið eða ekki. Það var mín athugasemd við ræðu hv. þingmanns.