157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:52]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni kærlega fyrir þessi tvö góðu innlegg hér í andsvörum. Hann kemur inn á það og ýjar að því að Sjálfstæðisflokkurinn skilji við með 125 milljarða vaxtakostnað í skuldum út af, eins og mér heyrist forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar segja, óráðsíu eða lélegum ríkisrekstri. Þá vil ég bara minna á að ég fór hér yfir allar skattalækkanir og nefndi líka minni tekjuöflun sem skapaði það umhverfi að fyrstu átta ár ríkisstjórnar sem Sjálfstæðisflokkurinn sat í var eitt lengsta lágvaxtaskeið lýðveldistímans og verðbólgan var sú lægsta í langan tíma og gengið hvað stöðugast. Við borguðum niður gríðarlegar skuldir, vorum nánast skuldlaus á þessum tíma eftir stöðugleikaframlögin og annað. Við náðum gríðarlegum árangri. Svo fellur WOW-air, tvö stríð og Covid-faraldurinn skella á og það verða náttúruhamfarir á Reykjanesi eða á Suðurnesjum. Við framkvæmdum okkur út úr þessu. Við gripum fjölskyldur og fyrirtæki í öllum þessum aðstæðum með gríðarlegum kostnaði og gríðarlegri skuldsetningu. Við héldum hagvexti gangandi í landinu, þeim mesta í Evrópu, það stendur m.a.s. í fjárlagafrumvarpinu að hagvöxturinn sé áfram lítill í Evrópu en hann var áfram hár hér. Gengið var orðið það stöðugt. Við björguðum fólki og fyrirtækjum og allt gekk vel en skuldirnar jukust því miður og vextir og verðbólga fóru upp. Við vorum búin að vanda okkur við að ná því niður. Nú hefur Kristrúnu Frostadóttur tekist að setja það aftur í frost.