157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:56]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, ég er einmitt að leggja til að það verði farið í svipaðar aðgerðir af því að það hefur sýnt sig aftur og aftur að það reynist vel. Á meðan við vorum að lækka þessar álögur og skatta og gjöld þá voru tekjur ríkissjóðs ár eftir ár mun meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir; 100 milljörðum meiri, 50 milljörðum meiri, núna 30 milljörðum meiri. Ríkisstjórnin núverandi hefur tekið við betra búi en áætlanir gerðu ráð fyrir, og munar þar 80 milljörðum, út af þessu. Það hefur tekist vel að bregðast við þessum áföllum samhliða því að lækka álögur og annað slíkt. Við getum haldið áfram að hagræða í ríkisrekstrinum og við getum haldið áfram að lækka álögur til að gefa atvinnulífinu og fjölskyldum í landinu súrefni. Þá getum við tekist á við þann skuldabagga sem hér er. Við getum losað um eignir til að lækka skuldirnar og hagrætt þannig. Við getum lækkað álögur á fyrirtækin í landinu þannig að útflutningsverðmætin aukist, verðmætasköpun innan lands aukist. Já, ég er að leggja það til að þessi ríkisstjórn stigi svipuð skref og Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert undanfarinn rúman áratug.