fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt að fá að ræða þetta frumvarp hér í dag og ég vil byrja á að óska fjármálaráðherra til hamingju með framlagningu þess. Það er sannarlega margt í því og ég veit að við munum taka góðan tíma í að vinna það vel og nefndin auðvitað sérstaklega.
Ég get tekið undir ýmis mál sem hafa komið upp í umræðunni í dag. Það er auðvitað ákveðið áhyggjuefni hvernig útfærslan verður nákvæmlega á kílómetragjaldinu. Ég held að allir hafi skilning á því að það þarf að fá tekjur til að reka vegakerfið en ég get sagt bara t.d. í samhengi við fólk sem er að vinna í Reykjanesbæ og keyra til Reykjavíkur að auðvitað hefur fólk áhyggjur af því að þetta sé skattur sem leggst meira á landsbyggðina. Ég veit til þess að það hafa verið útfærslur í öðrum löndum sem eiga að koma til móts við mikinn akstur þeirra sem þurfa að sækja vinnu í önnur byggðarlög og ég vonast til að nefndin fari sérstaklega yfir slík sjónarmið.
Ég get líka tekið undir mikilvægi þess að séreignarsparnaður og samsköttun hjóna haldist, eða að við ræðum það. Ég veit að séreignarsparnaðurinn hefur verið grundvallarmál fyrir margar fjölskyldur, eitthvað sem hefur nýst til að halda höfuðstól viðráðanlegum á tímum gríðarlegra hækkana vegna verðbólgu.
Að lokum get ég tekið undir og í raun og veru stutt þá áherslu sem birtist í fjárlögum sem snýr að innviðum. Mér finnst jákvætt að sjá að við erum að sækja fram í því að efla innviði landsins. Þetta eru þær æðar sem tengja samfélögin saman og eru mikilvægar fyrir verðmætasköpun. En auðvitað eigum við eftir að sjá hvernig útfærslan verður. Það birtist í samgönguáætlun. Þá eigum við t.d. eftir að sjá hvernig samhengi samfélaga sem eru að greiða há veiðigjöld birtist í innviðafjárfestingum. Maður hugsar t.d. til Vestmannaeyja þar sem grundvallarinnviðir eins og vatnslagnir og raforka er eitthvað sem þarfnast uppfærslu á sama tíma og atvinnuuppbygging þar, ef við horfum t.d. á landeldi, er í mikilli sókn og slík sókn er í takt við þær áherslur sem ég hef heyrt að birtist í atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar. Allt er þetta eitthvað sem við eigum eftir að ræða á komandi dögum og vikum.
Mig langar til að draga fram eitt af því sem ég sakna sárlega að sé ekki þyngra áhersluatriði í þessum fjárlögum og ég tel að eigi við, ekki bara núna heldur næstu árin. Það er sérstök fjárfesting í annars konar innviðum, þ.e. innviðum sem tengjast tungumálinu okkar, því að alveg eins og við höfum dregist aftur úr þegar kemur að uppbyggingu samgangna og jarðganga þá þurfum við að gefa í núna þegar kemur að tungumálakennslu fyrir innflytjendur og sérstaklega stuðningi fyrir grunnskólana. Mér finnst bara ágætt að hugsa um þessa fjárfestingu eins og fjárfestingu í öðrum innviðum. Það er dýrt að byggja brýr, það er dýrt að byggja jarðgöng en ábatinn af slíkum grundvallarfjárfestingum skilar sér í betri tengingum sem lifa um áratugaskeið. Það er akkúrat þannig sem við þurfum að horfa á fjárfestingu í íslenskuinnviðunum okkar. Það getur verið dýrt, það getur verið flókið að fara í alvörufjárfestingu í slíkum verkefnum núna en það er eitthvað sem við munum uppskera í ef við gerum vel, ef við horfum á gæði, erum með skýr markmið langt fram í tímann.
Þá má kannski spyrja sig: Af hverju er þetta mikilvægt núna? Jú, þetta er mikilvægt núna af því að við höfum verið að sjá mikla fólksfjölgun, 50.000 manns frá 2017. Við erum líka að tala um mikla breytingu í grunnskólunum. Síðustu tölur sem ég sá sýndu að um 30% barna hafa erlendan bakgrunn. Auðvitað eru sum fædd á Íslandi en það þýðir hins vegar að þetta eru í mörgum tilfellum einstaklingar sem þurfa meiri stuðning. Við þurfum að veita hann ef við ætlum að tryggja að fólk vaxi saman, hafi sömu tækifæri og að við getum verið sterk sem ein heild.
Ef við horfum á þessa þykku bók sem er hérna fyrir framan okkur þá erum við að tala um allt. Við erum að tala um atvinnustefnu, við erum að tala um menntastefnu, við erum að tala um kostnað við félagslega kerfið. Auðvitað er öflug íslenskukunnátta mikilvæg fyrir alla þessa þætti. Hún er mikilvæg fyrir atvinnustefnuna okkar, hvernig atvinnulíf hér á landi þróast, hvernig störf hér á landi þróast, gríðarlega mikilvæg fyrir ólíka geira hér á landi og hvernig við metum þá og sækjum fram. Hún er líka, eins og ég sagði áðan í samhengi við grunnskólana og það á í raun og veru líka við önnur skólastig, gríðarlega mikilvæg fyrir hvernig menntakerfið okkar getur þróast og haldið utan um þetta og hvaða færni nemendur öðlast í skólum. Við þurfum ekkert annað en að horfa á það hvernig læsi hefur almennt farið aftur og hvaða áskoranir hafa verið í skólakerfinu til að sjá að fjárfesting í íslenskukennslu hlýtur að skipta máli þannig að nemendur séu vel í stakk búnir til að sækja tækifæri til að skapa verðmæti fyrir Ísland.
Ég geri mér grein fyrir að þau verðmæti verða ekki til á þessu kjörtímabili en það er núna sem við þurfum að leggja þann grunn því að annars — og hér horfi ég aftur á hvítu bókina sem liggur á mörgum borðum — förum við að horfa á aukinn kostnað þegar fram í sækir. Við förum að horfa á aukinn kostnað í félagslegum kerfum o.s.frv. Þannig að lykillinn að því að við náum betri árangri sem ein sterk þjóð er að við tengjumst betur saman, ekki bara í gegnum brýr og jarðgöng og vegi, þar sem vissulega eru vanfjárfestingar þar sem við þurfum að sækja fram, heldur líka í gegnum það sem tengir okkur beint saman, augliti til auglitis, fær okkur til að skilja hvert annað, vilja vinna saman, búa til ný tækifæri — og það er tungumálið okkar.
Þess vegna langar mig til að hvetja hæstv. ráðherra til að horfa sérstaklega á þetta. Ég held að við þurfum að horfa á þetta í samhengi, ekki bara við þetta ár heldur til næstu ára. Þetta er eins konar þjóðarátak sem við þurfum í þessum málum ef vel á að takast til. Góðu fréttirnar eru að það er hægt en það er enginn annar en við sem getur ákveðið að við ætlum að hækka rána, auka sóknina í að okkur gangi betur með íslenska tungu í okkar samfélagi. Ef við gerum það ekki þá er alveg ljóst að íslenskan mun lækka róminn og það held ég að sé staða sem enginn vill sjá. Ég veit að þetta er ekki flokkspólitískt mál. Ég veit það bara, horfandi hér í augu fólks í salnum, að fólk er hlynnt því að við eflum íslenskukennslu og styrkjum. Ég segi: Sækjum hér fram og setjum það á dagskrá í þessum fjárlögum.