157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:07]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir sína ágætu brýningu og ætla að taka undir orð hennar um að samstaða meðal íslenskra stjórnmálaflokka um mikilvægi íslenskunnar sem lykli að framtíð í íslensku samfélagi sé óumdeild. Ég tek undir þau orð hennar. Þessi samstaða á sér alllanga sögu og það er alls ekki þannig að þetta mál sé að koma upp í fyrsta skipti í þessari umræðu hér í dag heldur hefur það verið rætt ítrekað í gegnum tíðina. Það hefur verið lagt í umtalsverða fjárfestingu nákvæmlega í því að styrkja íslenskukunnáttu. Því miður, eins og fram kom í máli hv. þingmanns, hefur það ekki skilað sér í þeim árangri sem við hefðum viljað sjá. Það er mjög mikilvægt að við komumst að því hvernig má gera betur í þessum málaflokki og hugsanlega nýta þá fjármuni sem þegar er ráðstafað í hann til þess að við byggjum upp það átak sem ég tek undir með hv. þingmanni að þarf að eiga sér stað þannig að það skili þeim árangri sem ég er sannfærður um að bæði ég og hún og sjálfsagt flestir í þessum sal eru sammála um.

Það sem íslenskan og íslenskukunnáttan gerir er ekki einungis að veita aðgang að samfélaginu heldur er það líka þannig að án þessa aðgangs verður íslenskt samfélag af þeirri verðmætasköpun sem sköpunarkraftur, þekking, gáfur og hæfileikar þeirra einstaklinga sem velja að flytja til Íslands og búa hér hefðu annars getað leitt af sér, þeim og íslensku samfélagi til heilla.