157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:13]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir andsvarið. Ég held að það séu tækifæri núna til að þétta raðirnar og finna nýjar leiðir. Ég held að þörfin hafi aldrei verið meiri. Ég ætla að segja hér eina litla sögu frá því í vikunni. Ég tók leigubíl og hitti þar öflugan ungan mann sem hafði flust hingað til lands. Viðkomandi hafði unnið mikið, keypt sér íbúð, var að vinna í ólíkum geirum en talaði mjög litla íslensku. Þegar ég spurði hvort hann ætlaði að búa hér til langframa og hvort hann hygðist ekki læra málið sagði hann einfaldlega: Ég þarf ekki að læra málið, ég vinn bara með fólki frá öðrum löndum en Íslandi. Ég á enga vini frá Íslandi. Ég er ekki tengdur íslensku samfélagi þótt ég búi hér og vinni hér og líði mjög vel hér. Þetta vakti mig til umhugsunar. Ég held að við séum á miklu meira krefjandi stað en áður því að kannski eru margir í þessari sömu stöðu. Þó að mig langi til að læra íslensku, sagði hann, þá hef ég engan til að æfa mig í að tala málið við. Finnum leiðir í gegnum kórastarf, í gegnum listina, finnum leiðir í gegnum íþróttafélögin, sköpum alvöru fjárhagslega hvata fyrir fyrirtækin til að kenna sínu fólki íslensku. Förum einhverjar óhefðbundnar leiðir í þessu. Ég er viss um að við getum náð miklu lengra. Þetta byrjar allt hjá okkur sjálfum. Ef við ákveðum ekki hvar við ætlum að vera sem samfélag þá verður þetta bara einhvern veginn. Gerum betur og ég veit að við erum öll hér inni tilbúin að leiða saman hesta okkar til þess.