157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:15]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir hennar innlegg hér og þakka henni fyrir jákvæðnina sem hún sýnir okkur í meiri hlutanum og ríkisstjórninni og jákvæðnina gagnvart þessu fjárlagafrumvarpi. Hún byrjaði einmitt á að segja okkur að hún væri sátt við mjög margt í því og það er gott að heyra það. Ég er sammála henni og ég tek undir hvert orð. En ég vil líka benda á að þessi ríkisstjórn, og þeir þrír flokkar sem standa henni að baki, er náttúrlega bara nýleg tekin til starfa, má segja; við byrjuðum hérna í febrúar og ekki er öll nótt úti enn. Ég veit að það stefnir í að sett verði á laggirnar ný móttökustöð fyrir fólk á flótta, eða fólk sem er að flytja hingað til lands og er af erlendum uppruna. Á næsta ári verður mögulega meira svigrúm til þess að setja meira fjármagn akkúrat í þennan geira. Ég er þess fullviss að margt á eftir að breytast í þessum efnum á kjörtímabilinu og vonandi eins hratt og mögulegt er þó að það sé kannski ekki akkúrat núna sem einhver stórkostleg hækkun fer í nákvæmlega þetta atriði í fjárlagafrumvarpinu.

En það voru nokkur atriði sem mig langaði líka að benda á, eins og það sem kom fram hjá hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur, og það er að við byrjum kannski á að líta í eigin barm. Ég veit með sjálfa mig hversu fljót ég er að byrja á að tala ensku við fólk sem er einmitt að læra íslensku og vill ekki að enska sé töluð við það. Oft er það bara mín eigin sök og ábyrgð að vera ekki sá aðili sem býður upp á það að hægt sé að æfa sig þegar verið er að komast inn í málið og byrja að tala íslensku. Það er svo margt — og auðvitað allar þessar góðu tillögur. En við sjálf erum kannski líka fólkið sem getum gert meira í þessum efnum, bara hér og nú liggur mér við að segja.