157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:17]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég get tekið undir það að það er margt sem byrjar hjá manni sjálfum. En kannski bara til að skerpa aðeins á boðskapnum þá tel ég að við þurfum, og ekki seinna en í þessu fjárlagafrumvarpi og til næstu ára og sennilega næstu kjörtímabila, að hafa samfellda áætlun um fjárfestingu í þessum innviðum, á jafn alvarlegan og brýnan máta og við lítum á aðrar innviðafjárfestingar. Þetta er eitthvað sem bindur okkur saman. Ég hef búið í ólíkum löndum þar sem ekki var fjárfest í samheldni þegar miklar samfélagsbreytingar urðu og það er yfirleitt þannig að það verða áskoranir í annarri og þriðju kynslóð. Ég sé núna að við verðum að þétta raðirnar og líta á þetta sem raunverulegt og áþreifanlegt fjárfestingarmál ekki seinna en í dag. Við eigum að horfa á þetta eins og brýrnar, þær eiga að þjóna okkur næstu 100 árin, þær eru dýrar núna — þetta er eitthvað sem má ekki bíða.

En síðan vil ég líka segja bara almennt um fjárlagafrumvarpið: Það er auðvitað þannig að það eru ólíkar ríkisstjórnir og mér finnst gott að horfa á þetta með þeim augum að það eru ólíkar áskoranir sem koma fram. Stundum er hægt að vera í einhverju rosalegu snjóboltakasti en vissulega er það þannig að það voru stórar áskoranir, t.d. náttúruhamfarir, á síðasta kjörtímabili og blessunarlega og vonandi þurfum við ekki að takast á við slíkt á þessu kjörtímabili. Ég segi líka, nú þegar við erum að hefja þing aftur: Reynum að vera dálítið samstillt og saman í liði í þessari umræðu því að það er nú yfirleitt þannig að fólk er að reyna að gera sitt besta.