157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:39]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar svar. Mig langar að víkja að öðru sem hún nefndi sem eru Covid-aðgerðirnar. Það er ljóst, eftir á að hyggja, að þær voru of dýrar og stóðu of lengi. Af þessu þurfum við að draga lærdóm. Það er ljóst að sú mikla þensla sem varð í kjölfar þess að Covid lauk varð að stórum hluta valdur að því verðbólguskoti sem varð á Íslandi. Íslensk verðbólga var ekki drifin áfram af orkuverðshækkunum eins og var í nágrannalöndunum heldur var þetta gamaldags þensluverðbólga. Við þurfum að draga af þessu lærdóm.

Varðandi tekjur ríkisins af bifreiðum og notkun þeirra þá held ég að við þurfum að skoða það í samhengi við kostnaðinn af því að viðhalda vegakerfinu. Það er ekkert óeðlilegt að greiðslan fyrir þessa þjónustu ríkisins komi fyrst og fremst frá þeim sem nota hana. Þess vegna er samanburður við þróun tekjustofnsins yfir tíma og samanburður við kostnað alls ekki óeðlilegur.