fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Mæli hæstv. fjármálaráðherra manna heilastur þegar hann nefnir að það þurfi að skoða skatta og gjöld af bifreiðum í einhverju samhengi við útgjöld til vegamála. En það liggur líka fyrir í þessu fjárlagafrumvarpi. Útgjöld í vegamálum — það er gert ráð fyrir 46 milljörðum þar. Það er gert ráð fyrir 77 milljarða kr. sköttum á bifreiðaeigendur. Þetta eru tölurnar sem menn þurfa að velta fyrir sér. Hvert erum við komin? Og auðvitað er það þannig að það er þjösnast á bifreiðaeigendum. Það er verið að fjármagna, eins og hæstv. forsætisráðherra sagði í svari til mín hér fyrr í dag, eða í svari til einhvers annars sem var að ræða þetta, alls konar þjónustu við börn, sjúkrahúsin, greiningarmiðstöð og hvað veit ég. Þetta nefndi hún í samhengi við umræðu um skatta á bifreiðar. Ég veit að það eru ekki markaðir tekjustofnar en telur hæstv. fjármálaráðherra ekki að þegar skattur á bifreiðar, á venjulegan bíl, heimilisbílinn, er kannski kominn upp í 70% af bílnum sé kannski komið tilefni til að staldra aðeins við og velta fyrir sér hvort þetta sé mögulega mannfjandsamleg stefna, hvort þetta sé aðför að heimilunum í landinu.
Að öðru leyti langar mig líka að spyrja hæstv. fjármálaráðherra spurningar sem ég held að hann hafi ekki fengið áður. Ég held að það væri fróðlegt að heyra frá honum um það sem er kannski kallað í fræðunum að fara fram fyrir mál. Það væri áhugavert að heyra hvort það er eitthvert atriði þarna sem hæstv. fjármálaráðherra hefur sérstakar áhyggjur af í ríkisfjármálunum, einhver þróun. Ég veit hann er bjartsýnn og allt það, en hefur hæstv. fjármálaráðherra kannski einhverjar áhyggjur af auknum kostnaði í almannatryggingakerfinu vegna örorku og starfsendurhæfingar? Ég bara nefni þetta af því að það er gott að varpa þessu fram þannig að þingmenn hafi einhverjar slíkar áhyggjur hæstv. fjármálaráðherra í huga við þinglega meðferð á næstu vikum.