fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Já, það kemur alveg fyrir að við hæstv. ráðherra séum sammála, ekki síst á þessu málefnasviði. Varðandi ónot í garð Evrópusambandsins, að nefna það hneykslismál sem sofandaháttur forsvarsmanna þess var í aðdraganda innrásar Rússlands í Úkraínu — já, það er hægt að kalla það það. En hæstv. ráðherra segir ekki af eða á með næsta ár varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna, hvort hún kemur þá bara inn bakdyramegin. En það er auðvitað ótrúleg — og ég ætla bara að nýta þessar síðustu sekúndur til að segja það — forgangsröðun hjá hæstv. ráðherra og ríkisstjórninni að við þessar aðstæður, alveg sama í hvaða horn er litið, bæði hvað varðar efnahagslegar aðstæður á Íslandi og í alþjóðlegu samhengi, í því öryggisumhverfi sem við búum við, standi til að eyða orku, tíma og fjármunum í þessa sneypuför aftur.