fjárlög 2026.
Forseti. Ég vil undirstrika að í fjáraukalögum fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir 25 millj. kr. til að efla upplýsingar og fleira varðandi umræðu um þetta mikilvæga mál. En mér finnst það alltaf jafn sérstakt að þegar við ræðum um þetta mál þá kemur hver Sjálfstæðismaðurinn á fætur öðrum hingað upp og er alltaf með þessa yfirlýsingu, af því að það er grunnurinn: Við treystum ekki þjóðinni. Við vitum betur hvenær rétt er að taka næsta skref. Við ætlum bara ekki að treysta þjóðinni til þess. Ég er ósammála þessari nálgun. Við getum alveg tekist á um kosti og galla og fleira en ég hefði haldið að við gætum þó sameinast um það, að mínu mati er þetta ekki stórt skref, að spyrja þjóðina hvort við eigum að klára aðildarviðræðurnar eða ekki. Fyrst og síðast erum við að spyrja þjóðina út í það að leysa pólitíkina úr þessari sjálfheldu. Ég er bara ósammála þeirri nálgun Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins og eftir atvikum Framsóknarflokksins (Gripið fram í: Flokks fólksins?) að ekki sé hægt að treysta þjóðinni fyrir þessu skrefi. Þannig erum við — það getur vel verið að Flokkur fólksins hafi ólíkar skoðanir á Evrópusambandinu en Flokkur fólksins er alveg skýr með það að hann treystir þjóðinni fyrir næsta skrefi. Það er stór greinarmunur á því sem hann segir og stjórnarflokkarnir og því (Forseti hringir.) sem stjórnarandstaðan segir. Sem sagt: Þessi ríkisstjórn treystir þjóðinni.