157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:17]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu en þetta er risaspurning sem er gott að fá. Það er alveg ljóst að sú aukning sem nú er til varnarmála — langstærsta aukningin er fyrst og síðast, hvað varðar beinu varnarframlögin, til Úkraínu. Við ætlum að standa við skuldbindingar okkar, bæði út frá þróunarsamvinnu en ekki síður út frá varnarútgjöldunum; halda áfram að styrkja danska módelið, vera áfram í forystu í sprengjuleitarverkefninu með Litháen o.s.frv. Það sem mun skipta máli samhliða þessu, og þá er ég komin út í varnartengdu útgjöldin, er að í fjárlagafrumvarpinu er þessi aukning til lögreglu en líka til Landhelgisgæslunnar og við erum að styrkja, svo réttilega sem við gerðum, CERT-IS netöryggisþjónustuna. Við erum að gera mjög margt. En erum við að gera nóg? Nei, sem utanríkis- og varnarmálaráðherra finnst mér að við eigum að gera meira. En við gerum okkur grein fyrir því að stærsta verkefnið núna, samhliða því að tryggja öryggi borgaranna í hvívetna, bæði í samfélaginu og út um hinn stóra heim, er að ná verðlagsstöðugleika. Það er meginverkefni þessara fjárlaga sem við erum að ræða í stóru myndinni, það er verðlagsstöðugleiki, að ná verðbólgunni niður og þar með talið vöxtunum. Þá verður hvert ráðuneyti auðvitað að taka þátt í því. Það er þó alveg rétt að hlutfallslega eru útgjöldin til utanríkisþjónustunnar aukin af því að við sjáum að veður eru meira en válynd í þessu.

Það er síðan mikið fagnaðarefni að á morgun verður skýrsla samráðshóps þvert á flokka um varnar- og öryggismál kynnt. Við erum með stefnu í mótun og ég mun leita til þeirra aftur hvað það varðar að halda áfram með verkefnið, hvernig við getum byggt upp varnar- og öryggisstefnu, hvernig við sjáum bæði fjárfestingu í innviðum, vörnum og öryggi háttað. Við erum með öflugri æfingar (Forseti hringir.) nú en áður. Ég var að segja áðan að ég er nýkomin af sprengjuleitaræfingunni, eyðingaræfingunni. Og eins og alltaf (Forseti hringir.) erum við með kafbátaleitarsveitir frá Bandaríkjunum. Við erum með loftrýmisgæslu núna frá Belgíu og það er bara einfaldlega aukinn viðbúnaður á flestum sviðum og (Forseti hringir.) samstarf við bandamenn. Þangað erum við að fara og það styrkir áætlanir okkar og viðbúnað í hinu stærra samhengi.