fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég verð á svipuðum slóðum og hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir en ég held að það sé allt í lagi að höggva í sama knérunn því að hæstv. ráðherra svaraði ekki sérstaklega vel spurningum hv. þingmanns. Hér birtist í staðinn skætingur á borð við að menn treystu ekki þjóðinni til að ákveða hluti. Ég gæti spurt hæstv. ráðherra: Treystir hæstv. ráðherra ekki þjóðinni til að ákveða hvort það eigi að samþykkja bókun 35? Þetta eru bara einhverjir frasaleikir og vonandi verða þeir ekki allsráðandi í svörum ráðherra nú.
Ég spyr annars vegar um Evrópusambandsmálin og geri það í ljósi þess að í fréttum í vikunni viðurkenndi hæstv. utanríkisráðherra að því hefði viljandi verið leynt í málaskrá ríkisstjórnarinnar, þingmálaskránni, að til stæði að koma með Evrópusambandsmál hér inn á þingið. Það er svo sem ekki alveg í samræmi við lög að hæstv. ráðherrar leyni því viljandi sem þeir ætla sér að gera þegar þeir birta málaskrá sína.
Hitt varðar meðferð opinbers fjár í stuðningi við önnur lönd. Ég held að við séum sammála um mikilvægi þess að Ísland beiti sér fyrir þróunarsamvinnu og styðji fólki í neyð. En það er ekki sama hvernig það er gert. Hefur hæstv. ráðherra metið það hvort til séu aðrar og betri leiðir til að aðstoða til að mynda Palestínumenn en með stuðningi við UNRWA, sérstaklega í ljósi síendurtekinna upplýsinga um samspil UNRWA við Hamas og áhrif Hamas innan þeirrar stofnunar? Hefur hæstv. ráðherra hugleitt að önnur leið geti verið betri til að koma stuðningi til fólks sem þarf raunverulega á því að halda?