fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég held að lykilatriðið sé, og ég vona að það sé að fæðast skilningur hjá hv. þingmanni á því, að það þarf að hjálpa fólkinu í Gaza. Það þarf að hleypa mannúðaraðstoð á Gaza. Það er algjört lykilatriði. Við verðum líka að hafa það í huga að UNRWA er stofnun á vegum Sameinuðu þjóðanna. Það er þá ágætt að fá það á hreint og hv. þingmaður segir mér það þá bara á eftir að hann treysti sér ekki til að styðja við stofnun Sameinuðu þjóðanna. UNRWA hefur gegnt mjög mikilvægu hlutverki í Palestínu, hefur verið með aðkomu nokkurn veginn eins og stjórnvald sem ber ábyrgð á heilbrigðismálum og menntamálum, menntamálum barna á svæðinu, heilbrigðismálum barna og kvenna á svæðinu. Á það hefur núna verið klippt af hálfu Ísraelshers. Já, ég tel að stuðningur við UNRWA sé hluti af því sem við getum gert. Við höfum líka verið að styðja við Rauða krossinn, ætlum að gera með Alþjóðabankanum, höfum stutt það líka varðandi innviði og innviðauppbyggingu í Palestínu og á Gaza þannig að við erum með margar leiðir til að styðja við annars vegar uppbyggingu innviða á Gaza en líka að reyna að gera allt sem í okkar valdi stendur til að opna leiðir fyrir mannúðar- og hjálparaðstoð á Gaza. Það er verið að fremja brot á alþjóðalögum með því að beita hungri í stríðinu. Þetta er manngerð hungursneyð sem er algerlega óásættanleg. Þannig að já, UNRWA er hluti af því að við styðjum fólkið á Gaza. En það eru fleiri leiðir og ég vek athygli á því, við höfum einmitt verið að fara í gegnum alþjóðastofnanir með aukin framlög til að hjálpa fólkinu á svæðinu.