157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:32]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa spurningu því að þetta hefur gengið mjög vel, yfirfærslan, og við höfum lagt okkur fram um að styrkja CERT-IS enn frekar. Það er einmitt hluti af því að efla og styrkja innviði, auka eftirlit með innviðum að styrkja CERT-IS. Við erum búin að fjölga innan netöryggissveitarinnar en ætlum líka að fara í enn frekari uppbyggingu. En það sem mér hefur líka þótt svo ánægjulegt er að sjá bara almennt í ráðuneytinu hvernig er unnið þvert á stofnanir, þvert á fagsvið til þess að efla áfallaþol okkar en líka hvernig við getum treyst á okkar innviði, hvort sem þeir eru á hafi úti eða hér heima. En við þurfum að hafa varann á og við vitum alveg að það er alls konar í gangi sem mann hafði ekki órað fyrir. Þess vegna þurfum við, talandi um að vera ábyrgur aðili innan Atlantshafsbandalagsins, að styrkja okkur á þessu sviði. Þarna getum við verið sterk og erum sterk og ætlum að styrkja okkur enn frekar þannig að ég myndi segja að reynslan fram til þessa hafi verið góð. Það er verið að feta sig áfram. Við erum að efla og auka alþjóðasamstarfið á þessu sviði og leita bæði þekkingar og miðla þekkingu ekki síður. Netöryggi er atriði sem við þurfum að taka föstum tökum og við vinnum það í samstarfi við önnur ráðuneyti, aðrar stofnanir en ekki síður umheiminn, aðildarríki NATO o.s.frv., þannig að það eru spennandi en líka mjög snúnir tímar fram undan á þessu sviði.