157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:41]
Horfa

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta. Hún nefnir sérstaklega framhald á vinnu hópsins og ég leyfi mér að fullyrða, fyrir hönd okkar sem stöndum að þessari afurð, að við erum öll tilbúin til að gera það. Ég tel það einfaldlega mjög mikilvægt og það er gott að tilheyra þverpólitískum hópi í málefnum sem eru miklu stærri en maður sjálfur og meira að segja stærri en Ísland eingöngu og að við séum alla vega enn þá með þannig pólitískan veruleika að við ráðum við slík þverpólitísk verkefni vegna þess að það eru orðin undantekningartilfelli nánast í löndunum í kringum okkur. Ég er bara orðin raunverulega áhyggjufull um að staðan sem við horfum upp á geti mögulega þýtt að veröld sem er geti orðið veröld sem var. Mér finnst mikilvægt að hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin og við hér á Alþingi séum meðvituð um það að mögulega þurfum við bara aðeins að endurhugsa hluti nokkuð hratt. Í samhengi við stuðning við Úkraínu þá ætti það að vera öllum ljóst hvað það er raunverulega sem þau eru að gera og hvað það þýðir fyrir okkur þegar við sjáum brot á lofthelgi Póllands með þeim hætti sem við sáum.

Mig langaði að spyrja um ríkislögreglustjóra sem ég veit að heyrir ekki undir ráðherrann (Forseti hringir.) en í samhengi við öryggis- og varnarmál þá er ekki hægt að taka út það mikilvæga púsl. Við vitum að þar er frekari fjárþörf, bæði viðhald og fjárfesting. (Forseti hringir.) Eru einhverjar leiðir til þess að bæta úr því enn frekar í meðförum málsins á þingi?