157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:42]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ríkislögreglustjóri er náttúrlega ein af þessum grunnstofnunum til að efla og styrkja öryggi okkar í þessu stóra samhengi og það er bara eitt af þeim verkefnum sem við þurfum að taka betur utan um, ég bara viðurkenni það. Um leið finnst mér það ótrúlega mikil áskorun og spennandi, þótt það sé erfitt að tala um spennandi hluti á þessum tímum, að við getum komið saman og reynt að tala okkur inn á einhverja heildstæða niðurstöðu þvert á stjórnarandstöðu og stjórnarflokka, þvert á stofnanir og ráðuneyti og ég vona að okkur auðnist það. En það krefst aga af okkur sjálfum að falla ekki í ákveðna freistni stjórnmálanna. En það er eins og það er. Þetta er gríðarlega mikilvægt og ég deili áhyggjum hv. þingmanns þegar við sjáum Rússa fara með hátt í 20 dróna inn á pólskt svæði. Þetta er auðvitað engin tilviljun, þetta er allt markvisst. Það er allt gert til þess að ögra og sjá hvort NATO-ríkin standi í lappirnar og þori að sýna sinn fælingarmátt líka. Þess vegna verðum við að taka þetta verkefni, sem er risaverkefni og verður að hluta til skilað á morgun með skýrslu samráðshópsins, alvarlega (Forseti hringir.) og við verðum að taka það áfram og ég bið þá hv. þingmann líka að halda áfram að vera með svipuna á manni.