fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ágætisyfirferð. Ég verð að viðurkenna að þegar hæstv. ráðherra ber sér hér á brjóst og talar um hvað allt sé orðið miklu betra á nokkrum mánuðum þá finnst mér við hæfi að hæstv. ráðherra segi bara eins og er, þ.e. að margt af því sem hæstv. ráðherra er að hreykja sér af núna, kannski flest, var nokkuð sem síðasta ríkisstjórn gerði. Og þegar kemur að kjarabótum fyrir öryrkja þá var hæstv. ráðherra reyndar á móti. Það er allt í lagi að skipta um skoðun en hæstv. ráðherra væri maður að meiri að segja frá því og útskýra það. En hæstv. ráðherra verður auðvitað að hafa það eins og hæstv. ráðherra vill.
Ég vil hins vegar spyrja um ákvörðun um hluti sem hafa verið nokkuð í umræðunni. Ef fjárlögin ná fram að ganga þá liggur það fyrir að þeir lífeyrissjóðir sem eru kallaðir verkamannasjóðirnir munu neyðast til þess að skerða lífeyri þeirra sem minnst hafa, skerða lífeyri þess fólks sem hefur haft lægstu tekjurnar og verið skyldað í lífeyrissjóð þar sem örorkan er mest. Ég vek athygli á því að einn af fremstu verkalýðsleiðtogum okkar, Vilhjálmur Birgisson í Verkalýðsfélagi Akraness, hefur ítrekað vakið athygli á þessu ásamt forsvarsmönnum þessara lífeyrissjóða. Það var tekið á þessu í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar við síðustu fjármálaáætlun, að það ætti að koma til móts við þetta og leysa þetta mál. En þegar maður horfir á fjárlögin þá liggur það alveg fyrir að ef þau verða samþykkt óbreytt þá verður að skerða lífeyri þeirra sem lægstan lífeyri hafa í verkamannasjóðunum.