fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans ágæta andsvar, fyrir að tala um mína brjóstabumbu, hve dugleg ég sé við að berja mér á brjóst. Eins og hv. þingmaður veit þá hef ég fimm mínútur upp á sekúndu til að fara yfir allt það frábæra sem ég er að gera í ráðuneytinu mínu og ég bara gerði það með stæl, myndi ég segja. En það vita það allir sem vita vilja að ekkert gerist á einni nóttu og þessi ríkisstjórn hefur starfað í eina meðgöngu, svona í kringum níu mánuði. En staðreyndin er sú að ég er búin að gera átta sinnum meira í sambandi við uppbyggingu hjúkrunarheimila, að hrinda þeim verkferlum í gang, en gert var í tíð síðustu ríkisstjórnar.
Hvað viðkemur jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóðanna, svo ég tali um þessa víxlverkun sem hv. þingmaður hefur verið að tala um, þá er náttúrlega afar mikilvægt að við náum samkomulagi við lífeyrissjóðina um að koma í veg fyrir að kjarabætur, eins og hv. þingmaður nefnir, vegna nýs örorkukerfis geti skert það sem við erum að reyna að gera til að lyfta upp tekjulægstu hópunum. Það er ósanngjarnt gagnvart öryrkjum og það vitum við mætavel. En ég er vongóð um að hæstv. fjármálaráðherra, sem hefur forræði yfir þessu verkefni, muni ná árangri í viðræðum við lífeyrissjóðina og um leið koma í veg fyrir að við þurfum að koma með málið hér fyrir Alþingi til að gera það að lögum.
Síðan er það annað sem við höfum áhyggjur af og það er þessi jöfnun á örorkubyrði lífeyrissjóðanna. Það er mjög ósanngjarnt að lífeyrissjóðir, sem sumir hafa þyngri örorkubyrði, séu að greiða mesta kostnaðinn. Ríkið á ekki að vera sá aðili, það er eðlilegast að lífeyrissjóðirnir myndu bara sameinast um það verkefni að jafna byrði sín á milli, enda eru lífeyrissjóðirnir hluti af hinu svokallaða samtryggingarkerfi þjóðarinnar og bera þar mikla ábyrgð. Ég býst við því að í góðu samtali við lífeyrissjóðina og annað slíkt þá eigum við eftir að lenda þessu farsællega. Ég vonast sannarlega til þess að hæstv. fjármálaráðherra þurfi ekki að koma með málið hér inn til afgreiðslu og gera það að lögum.