fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Jafn valdamiklir og hæstv. ráðherrar eru þá er það ekki þannig að þeir geti gengið frá hjúkrunarheimilum án þess að hafa fjárheimildir til þess. Hæstv. ráðherra hefði ekki getað gengið í þau mál nema fjármögnun hefði verið tryggð og það var ekki gert af þessari meðgöngustjórn. En ég var ekki að tala um víxlverkunarfrumvarpið. Ég var að tala um það sem snýr að örorkubyrði þeirra lífeyrissjóða sem eru svokallaðir verkamannasjóðir, þar sem hæsta örorkan er. Víxlverkunin kemur ofan á ef það frumvarp færi í gegn, það væri viðbótarfjármagn. Það hefur verið bent á það að ekki er gert ráð fyrir neinu, ekki einni krónu, í jöfnun á örorkubyrði almennra lífeyrissjóða í þessu fjárlagafrumvarpi og þetta heyrir undir hæstv. ráðherra. Ef það gerist þá verða lífeyrisgreiðslur úr þessum lífeyrissjóðum skertar til þeirra sem lægstan hafa lífeyrinn, af ástæðum sem hæstv. ráðherra þekkir. Það voru ekki skýr svör við því. Ef þetta er stefna ríkisstjórnarinnar — og þetta er stefna ríkisstjórnarinnar, (Forseti hringir.) það kemur fram í frumvarpinu — þá kemur það mönnum kannski svolítið á óvart, held ég, flestum sem hafa hlustað á forystumenn ríkisstjórnarinnar, (Forseti hringir.) að menn ætli að ganga svona fram. En það er augljóslega niðurstaðan.