fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra fyrir gott svar. Við deilum áhuga á því að sem flestir hafi virkni og ég vil nýta mér þessa seinni mínútu sem ég hef hér til að hvetja hæstv. ráðherra enn til dáða. Mig langar til að nefna eitt úrræði sem hefur verið mikið notað bæði hjá Vinnumálastofnun og á geðsviði Landspítalans og á fleiri stöðum sem heitir IPS, sem stendur fyrir Individual Placement and Support, og vil bara hvetja ykkur til að auka það vegna þess að það hefur reynst mjög vel í að koma fólki í virkni.