157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:03]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Mig langar að nefna það að aðgerðir Vinnumálastofnunar t.d. síðastliðin ár hafa dregið mjög úr langtímaatvinnuleysi þannig að það er kominn mjög sterkur hvati alls staðar inn í kerfið okkar til að að koma til móts við fólkið sem er fast í atvinnuleysiskerfinu og vill helst ekki vera þar lengur en þarf þennan stuðning, oft sálrænan, geðrænan stuðning, til að ná að rífa sig upp með rótum og koma sér aftur af stað og í virkni út í samfélagið. Það eru allar hendur komnar á dekk, mjög öflugir sérfræðingar innan Vinnumálastofnunar og með sérfræðingum í VIRK Starfsendurhæfingarsjóði og öðru sem er bæði áfallahjálp og geðræn hjálp sem við munum sannarlega byggja á. Þannig að það standa vonir til þess að við eigum eftir að sjá mjög svo bjartari tíma fram undan fyrir fólkið okkar sem raunverulega vill ekki festast í neinu kerfi ef mögulegt er að það geti látið sér líða vel í samfélaginu og komist í virkni með okkur.