fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Það eru nokkur málefnasvið sem heyra undir hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra í þessu fjárlagafrumvarpi. Ég ætla kannski í þessari atrennu að draga hér fram einhver álitaefni er varða málefnasvið sem kallast 31, sem eru húsnæðis- og skipulagsmál. Ég tek eftir því að þær hugmyndir og helstu verkefni sem fjárlagafrumvarpið boðar á þessu sviði á næsta ári eru öll talin innan fjárlagarammans eins og það er kallað. Ég velti fyrir mér hér að í tengslum við stofnframlög vegna almennra leiguíbúða, fyrirkomulag sem hefur verið við lýði nú um nokkurt skeið, er gert ráð fyrir að þessi stofnframlög verði aukin um 3,9 milljarða. Hér er líka tilgreint að á móti falli niður tímabundið framlag vegna þessara stofnframlaga sem nemi 3,7 milljörðum kr. og að samtals nemi stofnframlögin 7,5 milljörðum — og samt er þetta talið innan ramma. Ég átta mig ekki á því, virðulegur forseti, í ljósi þess að þessi hlutdeildarlán hafa aldrei verið fjármögnuð, hvernig það rímar saman í fjárhagslegu tilliti að auka þessi stofnframlög en fella á sama tíma niður framlag um sömu fjárhæð. Ég vildi gjarnan vita hvort þessi framlög eru raunverulega innan ramma. Er þetta fjármagnað? Stofnframlögin hafa hingað til ekki verið fjármögnuð.