157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:06]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir góða fyrirspurn. Já, þetta er fjármagnað að því leyti til að það hefur verið ákveðið að framlengja tímabundið því sem áður var. Það er verið að búa til nýja umgjörð sem á t.d. að styðja enn frekar við hlutdeildarlán og hvernig við höfum útfærslur þar um. Eins og hv. þingmaður veit eru þetta fyrst og síðast aðgerðir sem miða að því að reyna að styðja við þann hluta húsnæðismarkaðarins þar sem skortur er, hreinlega vöntun á húsnæði, sem er aðaldrifkraftur þeirrar verðbólgu sem við erum að glíma við núna og er að mestu leyti eingöngu vegna innanlandsástands á húsnæðismarkaði. Það þarf ekki að hafa áhyggjur af því. Þetta er nákvæmlega þannig sem það verður. Allt það sem ég hef sagt hér — það er gert ráð fyrir því og það er fjármagn til staðar, ég get glatt hv. þingmann með því.