157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:08]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er ekki nóg, og í sjálfu sér engin ástæða til þess, að gleðja mig eitthvað sérstaklega. Ég átta mig eftir sem áður ekki á fjárlagafrumvarpinu að þessu leyti. Hæstv. ráðherra svarar því til að þetta verði framlengt, eitthvert fyrirkomulag sem hingað til hefur verið við lýði. En það er einmitt það sem ég velti fyrir mér, vegna þess að það er sérstaklega tilgreint að það falli niður tímabundið framlag sem nemur 3,7 milljörðum kr. En það á samt sem áður að auka stofnframlögin um 3,9 milljarða kr. Það kann að vera að ég sé eitthvað að misskilja. Það nægir ekki að hæstv. ráðherra segi bara að þetta verði fjármagnað, að þessu verði reddað. Það þarf að svara þinginu því hvernig þetta er hugsað. Hingað til hafa þessi stofnframlög ekki verið fjármögnuð. Menn hafa verið á biðlistum, eins og er gjarnan þegar verið er að dæla út peningum annarra manna; þá standa menn í biðröðum og einungis þeir sem fyrstir sækja um fá eitthvað. Þetta hefur ekki verið fjármagnað hingað til og ég spyr enn og aftur: Með hvaða hætti á að fjármagna þetta en samt vera innan ramma? Það er verið að auka þetta innan ramma. Hvaðan kemur þessi peningur?