fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra sagði: Við ætlum að byggja og byggja meira. Ég tek undir það, við þurfum að gera það. Við fengum í hendurnar greiningu í dag frá Samtökum iðnaðarins og þar er ekki bjartsýni til staðar. Yfirskrift þessarar greiningar er: Samdráttur í byggingariðnaði leiðir til efnahagslegs vítahrings. Þar er tiltekið að samdráttur hafi átt sér stað frá júlí 2023 til júní 2025, sem sagt á tveimur árum, þá er verið að tala um íbúðir í byggingu, úr 8.800 niður í 7.200. Það hefur verið fækkun um 1.600 íbúðir sem eru í byggingu á tveimur árum. Þetta er auðvitað grafalvarlegt þegar við erum að tala um vöntun á húsnæði og fjölda fólks sem á ekki þak yfir höfuðið. Mig langar vegna þessa og vegna þess að Samtök iðnaðarins eru að leggja fram réttar tölur, ég held að það leiki enginn vafi á því, að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún sjái eitthvað á sínu borði sem geti komið í veg fyrir að þessi þróun haldi áfram?
Í þessari greinargerð eru tiltekin ýmis atriði sem eru þess valdandi að þessi samdráttur er að eiga sér stað en við þurfum með einhverjum hætti að sjá til þess að snúa þessari þróun við. Er ráðherra með einhverjar lausnir á takteinum sem gætu hjálpað til við það?