fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar svar. Já, við þurfum væntanlega að byggja öðruvísi og eitt af því sem hefur hjálpað til við að byggja öðruvísi eru svokölluð stofnframlög sem urðu til í gegnum kjarasamninga á almennum vinnumarkaði á sínum tíma. Við erum líka með á borði ráðherra svokölluð hlutdeildarlán sem hafa gert það að verkum að margt ungmennið hefur getað keypt sér húsnæði og komið sér þaki yfir höfuðið og það skiptir miklu máli. Þetta félagslega fyrirkomulag þarf að lifa af og mig langar — af því að það er nefnt hér á bls. 326 í fjárlagafrumvarpinu að það eigi að breyta fyrirkomulagi stofnframlaga og síðan eigi að breyta fyrirkomulagi hlutdeildarlána — að biðja hæstv. ráðherra, ef hún getur á einni mínútu, að fara í stuttu máli yfir þessar breytingar.