fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Við erum bæði að auka fjármuni í hlutdeildarlánin og eins stofnframlögin. Við erum að styrkja og efla regluverkið þannig að það verði fyrirsjáanleiki og t.d. að verktakar viti nákvæmlega hvar þeir standa gagnvart því, hvað margar íbúðir þeir geti byggt með tilliti til þess að um t.d. stuðning hlutdeildarlánakerfisins sé að ræða o.s.frv. Þetta er í rauninni einn af þeim þáttum sem eru á borðinu eftir okkar vinnustofu og er liður í uppbyggingu húsnæðiskerfisins okkar. Þannig að, eins og ég segi aftur, ég bind vonir við það að innan skamms verði komin heildarmynd á allt það sem getur vakið upp spurningar um kerfið okkar, hvernig við ætlum að fara að því að byggja, hvar við ætlum að byggja, hvar við fáum lóðir, hvaða ríkislóðir við getum nýtt okkur o.s.frv. Hverjir vilja koma að þessu? Vilja t.d. lífeyrissjóðirnir okkar koma að því að aðstoða okkur við að byggja upp félagslega kerfið og annað slíkt? (Forseti hringir.) Það er ýmsum spurningum ósvarað. Við erum bara rétt að hefja þessa vegferð og ég er bjartsýn og brosandi, svo mikið veit ég.