fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisspurningar. Það er einkennilegt samt að hv. þingmaður skuli draga fram fátækt fjölskyldunnar þegar þetta með samsköttun hjóna — þetta er ekki persónuafslátturinn, hann verður ekki skertur, hjón geta áfram nýtt persónuafslátt hvort annars. Í sambandi við þessa samsköttun er þetta eingöngu að fara til einstaklinga sem eru komnir vel yfir milljón krónur á mánuði í laun. Ég ætla að halda því fram að einstaklingur með þær tekjur geti ekki fallið undir það að vera í fátækt. Hvað lýtur að séreignarsparnaðinum okkar, að geta greitt það inn á höfuðstól lánanna sinna, þá vissi ég ekki að búið væri að ákveða eitt eða neitt með einu pennastriki um að fella það brott. (VilÁ: Jú.) Ég hélt að það væri enn í skoðun og það væri ekki komið á borðið. Þá er ég bara að misskilja það. En hins vegar hef ég gjarnan sagt og segi það enn og aftur, og ég held að hv. þingmaður geri sér grein fyrir því líka, að það er vaxtaokur og viðvarandi verðbólga, óskiljanlegt vaxtaokur, sem er í rauninni að sliga alla íbúðarkaupendur, hvort heldur sem þeir eru efnalitlir eða efnameiri. Það er alveg ótrúlegt að borga 400.000 kr. inn á afborganir mánaðarlega af láninu sínu og að bankinn eða lánveitandinn skuli taka um 390.000 kr. af því í vexti og 10.000 kr. fara inn á höfuðstólinn. Það er í öllu falli hreinlega óskiljanlegt í mínum heimahúsum.
En það hefur líka annað sem ég hef vakið mikla athygli á og ég vil halda því til haga. Það er mér líka algerlega óskiljanlegt hvernig einstaklingur á að geta greitt 300.000–400.000 kr. á mánuði í húsaleigu en er ekki talinn bær til að greiða sömu upphæð inn á lán til þess að kaupa til eigin eignar. Það er ýmislegt að gert en þessi kona sem hér stendur er ekki í neinum takti við það sem hv. þingmaður er að gefa í skyn, að ég sé að ráðast hér á fátækar barnafjölskyldur að einu eða neinu leyti. Þvert á móti, hv. þingmaður. Þú getur alveg fagnað með mér. Ég er að standa vörð um fátækasta fólkið í landinu.