157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:23]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Rekstur heimilis er í höndum tveggja aðila. Ef annar þeirra er með eina milljón og þau geta nýtt samsköttunina af því að hinn er ekki að fullnýta tekjurnar, hvað er þá tveir deilt með milljón? Eru það ekki 500.000 kr.? Það er langt fyrir neðan meðallaun. Er það hátekjufjölskylda? Það held ég ekki. Á sama tíma er líka verið að skera niður með séreignarsparnaðinn. Og svo, eins og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson spurði um hér áðan, er líka verið að skerða réttindi þeirra sem eru lægst settir í lífeyrissjóðunum með því að taka öll jöfnunarframlögin út. Það er verið að ráðast á fjölskylduna úr öllum hornum af þessari ríkisstjórn.

En í lokin langar mig að spyrja: Það eru fleiri réttindi sem hæstv. ráðherra berst vel fyrir og ég styð hana í því. Ég nefni sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hæstv. ráðherra segir sveitarfélögunum að hafa engar áhyggjur. Ef þetta eru aukin réttindi þá hlýtur að vera aukinn kostnaður af því en ekki er gert ráð fyrir því í fjárlagafrumvarpinu. Hvernig eiga sveitarfélögin ekki að hafa áhyggjur af auknum kostnaði þegar ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði hjá ríkisstjórninni? Hvernig ætlar ríkisstjórnin að tryggja þessi réttindi?