157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:24]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Það kemur hvergi fram í þessu fjárlagafrumvarpi að það eigi að koma í veg fyrir að séreignarsparnaður geti gengið inn í húsnæðislánin, hvergi. Og það stendur ekki til að svo verði. Það er alveg tryggt að fyrstu kaupendur munu í það minnsta halda áfram að geta nýtt sér þennan séreignarsparnað. Spurningin hjá okkur er bara hvort við höfum það víðtækara þannig að það nái yfir fleiri. Hvað lýtur að samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem virðist vera mikið áhyggjuefni, um aukin réttindi fatlaðra — það eru engin aukin réttindi. Við erum bara að tryggja þau réttindi lagalega sem fatlað fólk á að hafa. Við erum búin að fullgilda þennan samning fyrir réttum 20 árum og við höfum verið að reyna, og ég veit ekki betur en svo hafi verið í ríkisstjórn hv. þingmanns, að menn hafi verið að reyna að koma í alla staði til móts við þær glufur sem hugsanlega gætu komið upp við löggildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ég frábið mér að þurfa að verja réttindi fatlaðra hér ítrekað í ræðustóli eins og þeir eigi ekki tilverurétt á landinu.