fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Það er ekki amalegt að fá tækifæri til þess að hnoðast aðeins meira í þessum málefnasviðum hæstv. ráðherra. Eitt sem mig langar að spyrja um varðar húsnæðismálin eins og áður. Hér er gert ráð fyrir því að lóðir og húsnæði í eigu ríkisins verði nýtt til að hraða uppbyggingu íbúða. Kannski væri hæstv. fjármálaráðherra betur til þess fallinn að svara þessu eða a.m.k. í samfloti með hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, en ég er bara forvitin að vita um þetta af því að þetta er líka, eins og allt annað, innan ramma. Ég velti því fyrir mér hvort það sé þegar gert ráð fyrir í þessu frumvarpi sölu eða a.m.k. afsali á eignum í þessum tilgangi. Ég er forvitin að vita hvort hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra gæti gefið okkur eitthvert dæmi um það. Eins og menn þekkja eru auðvitað alltaf hefðbundnar heimildir ráðherra til að selja fasteignir og afsala þeim. Þetta hlýtur að liggja fyrir af því að þetta er fyrir næsta ár, hér er gert ráð fyrir að lóðir og húsnæði í eigu ríkisins verði nýtt til að hraða uppbyggingu íbúða. Getur hæstv. ráðherra upplýst eitthvað aðeins um þetta?
Svo langar mig líka að fara aðeins í málefnasvið sem er nr. 27, sem er örorka og málefni fatlaðs fólks og er hæstv. ráðherra mjög hugleikið. Það kemur fram hér að það er töluverð aukning í ríkisútgjöldum á þessu sviði. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún hafi áhyggjur af því eða hvernig hún sjái framtíðina fyrir sér í þessum efnum í ljósi þess að nú eru aðrir hópar, t.d. fatlaðir sem var ályktað um um daginn, að fá svipaða hækkun á skerðingarmörkum og þar fram eftir götunum. Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér, virðulegur forseti, (Forseti hringir.) að mæta þessum kröfum svona einkum og sér í lagi í ljósi þess að ríkisstjórnin vill halda í við sig í ríkisútgjöldum á næstu árum?