fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég get ekki annað en hvatt hv. þingmenn sem sitja í hv. fjárlaganefnd til þess að skoða þetta sérstaklega. Það er áhugavert af því að það er lagt upp með að eignir ríkisins verði notað til uppbyggingar íbúða og það væri, fyndist mér, til bóta ef það lægi fyrir nákvæmlega hvaða eignir það eru sem ríkið ætlar að ráðstafa með þessum hætti og þá einnig til hverra ríkið ætlar að ráðstafa þessum eignum í þágu íbúðauppbyggingar. Ég skil a.m.k. hæstv. ráðherra þannig að fjárheimildir geri ráð fyrir þessu, þessi almenna heimild.
Eitt kannski örlítið þessu tengt líka, þótt það tengist ekki fjárlagafrumvarpinu sérstaklega, það væri fróðlegt að heyra hvað hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra finnst um þá stefnu Reykjavíkurborgar að þétta byggðina eins og verið hefur en banna í raun bílakjallara undir nýjum fjölbýlishúsum. Þetta er einhver ný stefna sem hefur tekið gildi og ég sé það t.d. öryrkjar eða fatlaðir, fatlað fólk og hreyfihamlað, kvartar mjög yfir þessu. (Forseti hringir.) Ætli, virðulegur forseti, hæstv. ráðherra gæti varpað ljósi á það hvort hún hefði einhver tök á að hafa áhrif á uppbyggingu að þessu leyti í höfuðborginni sjálfri?