fjárlög 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og segi í sambandi við ríkiseignir og annað slíkt að það er rétt, það er á höndum hæstv. fjármálaráðherra og samtal hefur verið í gangi alveg frá því að við tókum við völdum til að skoða hvaða möguleika við gætum í rauninni haft í sambandi við ríkiseignir.
Hvað lýtur að bílakjöllurum undir fjöleignarhúsum eða hverju sem er núna í þéttingarstefnu borgarinnar verð ég að segja að ég veit ekki hvort kom á undan, eggið eða hænan, en þessi saga hefur flogið ansi hátt þannig að ég taldi mig tilneydda til að inna borgarstjóra eftir því hvort það væri raunverulega svo að borgin væri að meina byggingarverktökum að koma með bílastæðakjallara undir byggingar sínar og hún sagði einfaldlega nei. Ég sel það ekki dýrara en ég stal því, eins og maðurinn sagði. Staðreyndin er sú að hún sagði að það væri talið kostnaðarsamt og það væru frekar byggingarverktakar sem veigruðu sér við því einmitt að koma upp þessum bílastæðum af því það væri svo ofboðslega dýrt. (Forseti hringir.) Þetta er nú bara það sem ég hef á borðinu núna. Ég veit ekki hvað er rétt, hvort kom á undan, eggið eða hænan, en þetta er í rauninni það sem ég hef núna í farteskinu og mun fylgja því betur eftir.