fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. Það er kannski þrennt sem ég vildi koma inn á. Í fyrsta lagi talar hæstv. ráðherra mikið hér um hafrannsóknir og við þekkjum mikilvægi þeirra. Það er þó ekki alveg sjálfgefið; það eru bara nokkrir áratugir síðan taka þurfti mikinn slag til að nota það sem grundvöll ákvarðana þegar kom að stjórn fiskveiða. Ég gat ekki heyrt annað á hæstv. ráðherra en að þetta væri áherslumál, og hæstv. ráðherra kinkar kolli. Skýtur það þá ekki svolítið skökku við að ríkisstjórnin hafi flutt fyrsta frumvarpið í áratugi, um breytingar á stjórn fiskveiða, án þess að tala við Hafrannsóknastofnun? Ég held að það séu margir áratugir síðan það var gert. Sá hluti sjávarútvegsins var færður í annað ráðuneyti sem er að vísu alveg stórfurðulegt. Það er eins og samgöngur á Suðurlandi hefðu verið færðar inn í umhverfisráðuneytið eða eitthvað slíkt. Er þetta eitthvað sem hæstv. ríkisstjórn ætlar að halda áfram með, að koma með breytingar á stjórn fiskveiða og ekki tala við vísindastofnunina? Það er kannski fyrsta spurningin.
Næsta spurning snýr að því, og það hefur komið fram hjá hæstv. forsætisráðherra, að það á að setja sérstakt gjald á ferðaþjónustuna, náttúrupassa. Hvernig verður það útfært? Hvaða upphæðir er um að ræða? Ætla menn þá að hætta þessari sértæku greiðslu sem t.d. hefur verið fyrir þjónustu, eins og salerni og bílastæði og annað slíkt? Eða mun þetta bætast ofan á? — Ég kem svo með þriðju spurninguna á eftir.