157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:42]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Mér fannst ég ekki fá mjög skýrt svar við því hvort menn ætluðu áfram að hafa þann hátt á að tala ekki við Hafrannsóknastofnun þegar fram kemur frumvarp um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, því að það hefur verið gert. Og þegar kemur að innheimtu á ferðamannastöðum er vísað í það á bls. 242, en látum það liggja á milli hluta.

Ég var ánægður að sjá að menn halda áfram með vinnu sem hefur verið í gangi í tvö ár þegar kemur að einföldun á heilbrigðiseftirliti. Ég saknaði þess nú að menn væru ekki að geta heimilda, að þeir væru að taka við verkefni sem væri í fullum gangi og að lítið væri eftir af því og að það væri byggt á svokallaðri Ármannsskýrslu eftir formanni starfshópsins, fyrrverandi bæjarstjóra, Ármanni Kr. Ólafssyni. Það var hins vegar mjög mikil andstaða við þetta frá ákveðnum aðilum, sérstaklega frá Heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík sem er undir forystu Samfylkingarinnar og Viðreisnar. Svipuð viðbrögð komu nú. Af því að ég vil hvetja ríkisstjórnina áfram í þessu spyr ég: Er einhver bilbugur? Munu menn láta flokksbræður sína, sem stýra Heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík, stöðva sig? Ætla menn ekki að halda áfram með þetta verkefni?