fjárlög 2026.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans spurningar. Nú veit hann jafn vel og ég að það eru engar meiri háttar breytingar að verða á lögum um stjórn fiskveiða og þetta var tilflutningur málaflokks. Það sem snýr að Hafrannsóknastofnun í lögum um stjórn fiskveiða snýr fyrst og fremst að vísindalegri ráðgjöf. Varðandi heildarumfang veiða þá hefur engin stefnubreyting átt sér stað varðandi það. Hafi einhverjum láðst að þakka hv. þingmanni fyrir einhver hans fyrri störf þá skal ég koma þeim ábendingum áfram en ég veit ekki til þess að það séu neinar tafir varðandi sameiningar heilbrigðiseftirlits.