157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:44]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir góða yfirferð. Skilvirkni í eftirliti með samkeppni er gríðarlegt hagsmunamál allra aðila í viðskiptalífinu. Traust umgjörð og eftirlit með samkeppni og starfsháttum fyrirtækja er mikilvægur þáttur í að tryggja að ábati af samkeppni skili sér til neytenda. Samþjöppun auðs og aukin fákeppni tærir stoðir heilbrigðs viðskiptalífs. Síðustu ár hefur Samkeppniseftirlitið kvartað undan því að hafa ekki getað sinnt lögbundnum verkefnum sínum vegna vanfjármögnunar. Þróun hérlendis hefur verið í þá átt að veikja eftirlit með samkeppni á meðan Norðurlöndin hafa verið að styrkja það. Ætlar ríkisstjórnin að styrkja eftirlit með samkeppni á Íslandi? Ef svo er, með hvaða hætti verður það gert?

Annar vandi sem við stöndum frammi fyrir á mínum heimaslóðum, sem og í öðrum fjörðum og flóum landsins, er hætta á slysasleppingum og undanfarið hefur borið á laxadauða. Fiskeldi er mikilvæg og sívaxandi atvinnugrein á Íslandi. Auknum umsvifum fylgir aukið eftirlit og útgjöld en til þess að atvinnugreinin geti blómstrað enn frekar í sátt við samfélagið er gríðarlega mikilvægt að hér séu starfræktar öflugar hafrannsóknir og eftirlit með starfsemi fiskeldisfyrirtækja. Ef göt koma á kvíar í sjó og frjór fiskur sleppur þaðan getur það valdið náttúruspjöllum sem kunna að skerða rekstraraðstæður greinarinnar og villt lífríki landsins jafnvel með óafturkræfanlegum hætti. Hvernig á að bregðast við þeim vaxandi vanda sem atvinnugrein sem byggir á lífríki Íslands glímir við í fjárlögum 2026? Á að styrkja greinina með auknu eftirliti og hafrannsóknum?