157. löggjafarþing — 3. fundur,  11. sept. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:46]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Eydísi Ásbjörnsdóttur fyrir ágætar spurningar. Það er rétt sem kemur fram í máli hv. þingmanns að samkeppnismálin eru gríðarlega mikilvæg og raunar eitt af áherslumálum í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Nú er auðvitað ramminn þröngur á þessu fyrsta ári en samt sem áður er 200 millj. kr. varið í að styrkja frekar samkeppnismál. Það er, veit ég, eitt af meginmarkmiðum atvinnuvegaráðherra að það sé einungis fyrsta skrefið á þeirri vegferð.

Síðan er hárrétt sem hv. þingmaður segir að það er mjög mikilvægt að við fylgjum uppbyggingu fiskeldis vandlega eftir og sagan sýnir að það er rúm fyrir umbætur á því sviði. Þess vegna er í þessum fjárlögum á málefnasviði atvinnuvegaráðuneytisins lögð áhersla á bæði að styrkja greiningar Hafrannsóknastofnunar á burðarþoli og eftirlit Matís, sem og innra eftirlit fyrirtækjanna sjálfra.